Árangursrík liðsheild – námskeið haldið í Endurmenntun Háskóla Íslands
Á námskeiðinu verður farið yfir aðferðir til að efla liðsheild og auka samstarfsvilja í fyrirtækjum og stofnunum. Það hefur sennilega sjaldan verið mikilvægara en nú, á tímum mikilla og hraðra breytinga í samfélaginu, að hlúa að þáttum sem snúa að samskiptum og samheldni á vinnustöðum.
Á þessu hnitmiðaða námskeiði mætast sjónarmið afreksíþrótta og stjórnunar í kraftmikilli blöndu tveggja reyndra leiðbeinenda sem nálgast viðfangsefnið frá sjónarhorni félagsfræði og sálfræði.
Á námskeiðinu verður leitast við að finna svör við spurningum eins og:
Hvað einkennir samstillt lið?
Hvað einkennir hugarfar liðsmanna í árangursríkri liðsheild?
Hvernig er hægt að bæta samskipti, sjálfstraust og seiglu liðsmanna?
Hvernig er hægt að skapa umgjörð og menningu fyrir árangursríka liðsheild?
Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, hópavinnu og hagnýtra verkefna þar sem leitast verður eftir að þátttakendur byggi upp eigin verkfærakistu til að takast á við knýjandi verkefni á sviði stjórnunar.
Mið. 7., 14. og 21. mars kl. 13:00—16:00 (3x)
Verð: 28.500 kr.
Kennarar: Jóhann Ingi Gunnarsson og Viðar Halldórsson
© 2010 Melar Sport ehf., Kt. 680809-0700, Reikningur 111-26-680809, magnus@melarsport.is / vidar@melarsport.is

